Sigga og Óli

mánudagur, október 20, 2003
 
Smá lestarferð...

Jæja, þá eru gestirnir farnir heim aftur og við aftur orðin þrjú í kotinu. Mamma og Addi Mummi voru sem sagt í heimsókn hjá okkur og voru í 12 daga. Í dag keyrði ég þeim svo á lestarstöðina og fylgdi þeim upp í lestina. Lestin var svolítið sein fyrir en ég hélt samt að hún myndi stoppa eins lengi og hún er vön að gera og var ekkert að stressa mig og hjálpaði þeim bara með töskurnar og svona. En nei, nei, svo keyrir lestin bara af stað og Sigga ennþá inni. Ohó ég rauk á lestarstarfsmanninn og sagði að ég ætlaði ekkert með lestinni en nei, nei lestin farin af stað og ég varð bara að gjöra svo vel að fara með henni á næstu stoppustöð sem var Nyborg og taka svo næstu lest aftur til baka til Odense. Alveg frábært :-( Þannig að ég tók mér smá lestartúr í morgun, bara aðeins að skreppa til Nyborg og aftur til baka. Þetta ferðalag mitt tók 40 mínútur allt í allt og ég var alveg á nálum yfir að fá stöðumælasekt því ég mundi ekki alveg hvað ég hafði borgað fyrir langan tíma í bílastæðahúsinu. En þegar ég kom til baka sá ég mér til mikillar skelfingar að ég hafði snúið bílastæðamiðanum öfugt og það sást ekki hvað ég hafði keypt langan tíma. Alveg týpískt... En sem betur fer slapp ég í þetta sinn - eða alla vega fann ég enga stöðumælasekt. SJÚKKET. Það er sko nefnilega ekkert grín að fá stöðumælasekt hér. Það eru sko yfirleitt engir stöðumælar heldur bara klukkuskífa í bílnum sem þú stillir - þeir treysta bara á heiðarleika fólks og yfirleitt má maður vera í 2 tíma á bílastæðum. En á sumum bílastæðum og í bílastæðahúsum eru svona miðavélar. En alla vega, ef þú færð stöðumælasekt þá er það 500 kall, sko danskur 500 kall sem gera 6000 íslenskan kall. Já, ég hefði sko ekkert orðið neitt sérstaklega glöð ef ég hefði þurft að borga það fyrir þessa ferð mína.

En já, þannig fór um sjóferð þá...

laugardagur, október 04, 2003
 
"Út á lífið..."

Já haldiði ekki bara að við höfum skellt okkur í bæinn í gær. Fyrsta skipti sem ég fæ smá sýnishorn af næturlífinu hérna í Odense. Óli fór nefnilega á fredagsbaren í gær með strákunum í grúbbunni og svo hitti hann Evu þar og hún bauð okkur með sér og tveimur öðrum pörum út að borða. Óli hringdi í mig og var orðinn velkenndur og babblaði og babblaði eitthvað rugl. Nema hvað að við skelltum okkur bara með þeim og fengum Sólveigu til að passa. Við fórum út að borða á ítölskum veitingastað sem heitir Mamas og það var ógeðslega gott að borða þar. Ég fékk mér kjúklingabringur með ofnsteiktum kartöflubátum, ristuðum sveppum og rjómasósu, mmmmmhhhhh þetta var geðveikt gott og svo geðveikt stór skammtur að ég torgaði bara helmingnum sem var á diskinum. Óli fékk sér kálfasteik með sama meðlæti og var með mínu og það var líka mjög gott.
Eftir matinn bættist svo einn strákur í hópinn og við sátum svolitla stund inni á veitingastaðnum og spjölluðum. Við vorum m.a.s. hálf partinn rekinn út úr húsinu. Þjónninn kom með reikninginn og bað okkur vinsamlegast að borga hann svo þau gætu gert upp kassann en sagði að við mættum samt alveg sitja þarna lengur. Við gerðum upp og settumst aftur. Svo byrjuðu þjónarnir að slökkva einhver ljós og við tókum það sem hint til okkar, þökkuðum fyrir okkur og fórum út. Þó fóru pörin tvö heim en við fórum með Evu og stráknum á tvo pöbba þar sem við sátum bara og spjölluðum. Það var bara mjög fínt en Óli var ekki lengur í stuði (runnið af honum :-)) og ekki ég heldur þannig að við fórum heim um 12:30. En þetta var bara alveg ágætt kvöld og ágætt að komast aðeins út.

En annars er það að frétta að mamma ætlar að koma með Adda Mumma hingað út í næstu viku. Geðveikt!!! Heiður bíður spennt eftir að fá þau og sérstaklega að fá nammið sem hún veit að þau koma með. Afi hennar ætlar nefnilega að senda henni hlauppúka :-)

Það er búið að ákveða það að við förum ekki heim um jólin, höldum þau bara hérna hjá henni Möggu frænku. Kannski verður það ekki svo slæmt, eða það vona ég alla vega.

En ég held ég láti þetta duga í bili. Heiður er að biðja um að fá smá útrás fyrir listrænu hæfileikana sína - hún ætlar að fara að mála, þannig að við biðjum bara að heilsa.

miðvikudagur, október 01, 2003
 
Og ég er enn að...

Já, já börnin mín sæl og góð, þetta er ég. Það er bara allt gott síðan seinast. Gerist svo sem ekki mikið hjá okkur. Ólafur Ingi og Karen komu heimsóttu okkur Heiði um daginn þegar Klakamótið var. Það var mjög fínt. Svo eigum við von á heimsókn í næstu viku en þá er Addi bróðir, og vonandi mamma að koma í heimsókn. Haustfríið er svo í þar næstu viku og þá verður örugglega gert eitthvað sniðugt, auk þess sem við verðum víst eitthvað að læra líka :-( Það eru búnar að vera vangaveltur hér á heimilinu að fara heim um jólin og heimilisfólkið búið að fara í milljón hringi út af þessum vangaveltum. Þessa stundina er hins vegar búið að blása þetta af en það er nú samt ekkert öruggt í þessum málum. Við skiptum stundum oftar um skoðanir heldur en nærbuxur þannig að þetta verður bara að koma allt í ljós.

Jú eitt enn er búið að gerast síðan síðast. Við erum sko búin að fá okkur uppþvottavél. Það er bara jólagjöfin okkar skötuhjúanna, ekki slæmt ha? Sólveig var nú aldeilis hneyksluð á þessu framferði okkar - skilur ekkert í því hvað þriggja manna fjölskylda hefur við uppþvottavél að gera. En ég hlusta nú ekki á svoleiðis bull, þessi fjölskylda hefur haft uppþvottavél í gegnum tíðina og sú uppþvottavél er ég. Núna hef ég sagt því hlutverki upp, alla vega í þeirri mynd sem það hefur verið :-) Óli var mjög glaður þegar ég viðraði þessa hugmynd um að gefa okkur hana í jólagjöf. Það friðar aðeins samvisku hans því hann er ekki sá duglegasti í uppvaskinu. (Ég á örugglega eftir að fá orð í eyra fyrir að skrifa þessa athugasemd hér inn...)

En já, svona hljóðaði þessi fréttapistill í þetta sinn.

Lifið heil!!!

miðvikudagur, september 10, 2003
 
Ótrúlegt en satt, ég er að blogga...........

Ég veit nú eiginlega ekki hvort ég eigi að þora að skrifa hérna, þriggja mánaða pása er svolítið löng pása...
En alla vega þá erum við komin aftur út til Danmerkur og erum flutt í nýju íbúðina í Odense. Það var svolítill hnútur í maganum á minni þegar við fórum frá Íslandi. Þetta var svona eitthvað svipað og þegar við fórum fyrst út, en samt náttúrulega ekki alveg jafn mikið. Og ekki hjálpaði sú tilhugsun að hugsanlega eigum við eftir að verja jólunum hérna úti í ár (ekki spyrja mig, þetta er Ólafur sem er að stinga upp á þessu!) Ég skil hann svo sem alveg, hann fer í próf strax eftir áramótin og það er eitthvað sem segir mér að það yrði ekki neitt rosalega mikið úr lærdómi fyrir þau próf heima á Íslandi. Það er ekki búið að ákveða þetta endanlega (undirrituð eitthvað treg til...) en það eru mjög miklar líkur á þessu (snökt, snökt). En nóg um jólin í bili. En þetta var ekki svo slæmt þegar maður var lagður af stað. Það var bæði spenna og kvíði í mér. Spennandi að fara á nýjan stað og prófa eitthvað nýtt en líka kvíði að yfirgefa þetta gamla góða. Og hræðilegt að hafa ekki Ásgeir og Karen í næsta stigagangi. En við fáum Sólveigu í staðinn :-)
Núna erum við svona nokkurn veginn alveg búin að koma okkur fyrir og lífið er að komast í fastar skorður. Það er ágætt. Við erum aðeins búin að kynnast nágrönunum og ég get sko sagt ykkur það að núna á þessum 3 vikum hér í Odense hef ég kynnst fleiri Dönum en á 2 árum í Sönderborg. Alveg merkilegt! Heiður Ósk er byrjuð hjá nýrri dagmömmu og það gengur bara rosalega vel. Mér gengur erfiðlega að koma mér af stað í skólanum en ég vona að það fari nú að koma núna þegar Heiður er byrjuð fyrir alvöru hjá dagmömmunni.

Já, allavega þá er bara allt gott að frétta. Ég nenni ekki að skrifa meira núna og því bið ég ykkur bara vel að lifa þangað til næst (líklega rétt fyrir jól... :-))


fimmtudagur, júní 12, 2003
 
Jæja, nú gengur þetta ekki lengur...
Já, það er nú meira hvað maður er duglegur að blogga hérna. Það er bara farið að reka á eftir manni og þá þorir maður nú ekki annað en að hlíða fyrirmælunum.

Það er bara allt gott að frétta af okkur. Ég er bara að vinna og Ragnheiður er byrjuð að passa Heiði. Það gengur bara vel og Heiður er ekki mikið að frekjast við hana sem er bara mjög gott. Við mæðgurnar fórum með Öllu, Fía og stelpunum á Arnarstapa um síðustu helgi. Það var bara mjög fínt og þar rifjaði ég upp kunnáttu mína í hinum geysiskemmtilega og sívinsæla tölvuleik SuperMario.Rosalegt stuð!!! Við erum búin að ákveða það að flytja til Odense og erum í íbúðaleit á fullu núna. Óli er bara að pakka niður í Sönderborg og er ætlunin að fara með dótið uppeftir áður en hann kemur heim. Það er svolítill hnútur í maganum yfir þessu öllu saman, en það er bæði kvíða- og spennuhnútur. Vona bara að við verðum búin að fá íbúð áður en Óli kemur heim. Nú er bara að krossleggja fingur og vona það besta :-)

Já og ég get sagt ykkur frá seinustu einkunninni minni. Já, já, ég fékk 9 í náms- og kennslufræði. Bara nokkuð sátt við það. Við fengum 9,5 fyrir kennsluverkefnið okkar og kennarinn okkar fékk m.a.s. lánuð nokkur verkefni frá okkur til að fara með á einhvern fyrirlestur. Ekki slæmt, HA!

Ég ætla að fara að koma barninu í rúmið (bjartsýn) svo að við látum þetta duga að sinni.

fimmtudagur, maí 29, 2003
 
Og fleiri einkannir...
Og já, já maður var að fá fleiri einkannir; 8,5 í stærðfræðinni. Bara nokkuð sátt við það :-) Þá er bara eftir að fá út úr einu fagi...

En núna er verið að skoða það að flytjast jafnvel búferlum í Danmörkinni góðu. Já, við erum aðeins að skoða það þessi mál og verður þá Odense fyrir valinu ef af verður. En þetta er svo sem allt á byrjunarstigi ennþá og ekkert víst hvort að af þessu verður. Það kemur allt í ljós.
Annars er bara allt og ekki neitt að frétta. Ég er voðalega lítið búin að gera af mér hérna á Íslandi annað en að vinna og vera í sveitinni. Og ætli það verði ekki svoleiðis bara eitthvað áfram. Vona svo að það fari að komast meiri regla á okkur þegar Ragnheiður barnapía verður búin í skólanum og þá förum við að vera minna á þessu endalausa flakki. En þetta er bara svona.

En ég held ég hafi ekki fleiri "stórtíðindi" í bili og bið að heilsa að sinni.

sunnudagur, maí 25, 2003
 
Ísland
Jæja, þá erum við mæðgurnar komnar til Íslands og ég er byrjuð að vinna. Það er bara mjög fínt - gott að fara að gera eitthvað "af viti" í smá tíma :-) Ekki það að það sé ekki viturlegt að vera í skóla, heldur bara ágætt að taka smá frí frá því og fara að vinna.
En ég verð nú að monta mig á því að ég er búin að ná þessu blessaða prófi sem ég var svo hrædd um að falla í, og haldiði að ég hafi ekki bara fengið 7. Ekkert annað! Ég var alveg ægilega ánægð þegar ég sá einkunina, bjóst ekki við henni. Var eiginlega viss um að ég hafði fallið og var búin að velta mér þvílíkt upp úr því að ég yrði að taka upptökupróf í ágúst og var búin að vera með þvílíkar áhyggjur af því að ég þyrfti örugglega að breyta flugfarinu aftur til DK. En það voru nú bara óþarfa áhyggjur, sem betur fer.

Ég horfði aðeins á Eurovisionkeppnina í gær - Birgitta stóð sig bara nokkuð vel fannst mér. Mér fannst líka ágætt lagið sem vann en ég veit ekki alveg hvort að það hafi samt verið það besta. En hvað með þennan Austurríkis bavíana - hvað var hann að gera svona ofarlega? Það er nú nokkuð víst að hann hafi bara fengið svona mörg stig út af því að þetta var svo glatað lag - ég held að það sé nokkuð ljóst. Og fékk 10 stig frá okkur, hvað var í gangi??? Ég bara spyr...

En ég ætla að fara að hlúa að sjúklingnum - Heiður Ósk er bara komin með bullandi hita núna og búin að vera frekar slöpp eitthvað. Vona að það taki fljótt af og hún verði orðin hress á morgun. Við látum þetta þá bara gott heita. Bless í bili...